- 1 1/4 bolli hveiti
- 1 tsk matarsódi
- 1/2 salt
- 1/2 tsk kanill
- 1 bolli smjör (ca 200g)
- 3/4 bolli sykur
- 3/4 bolli púðursykur
- 2 stk egg
- 1 tsk vanilludropar
- 3 bollar haframjöl
- 300 gr brytjað súkkulaði (suðusúkkulaði, Mars og/eða Snickers)
Hveiti, matarsóda, salti og kanil blandað saman í skál.
Í annari skál eru smjör, sykur, púðursykur, egg og vanilludropar þeytt vel saman og hveitiblöndunni bætt smám saman við. Haframjöli og súkkulaði blandað út í deigið.
Kúfaðar teskeiðar af deigi eru settar á plötu með góðu bili á milli.
Bakað við 200°c í 8 mín.
Fann þessa á spjallþræði er.is
[rating:93/100]