- 1 1/2dl gróft spelt
- 1 1/2dl fínt spelt
- 3 tsk vínsteinslyftiduft
- 2 msk extra virgin ólífuolía
- krydd að vild, t.d. Oregano, Salvía, Steinselja eða basil
- Smá salt
- vatn
Blanda saman spelti, lyftidufti, kryddi og salti. Bætið Olíunni í. Síðast kemur vatnið og það á að vera það mikið að þið náið að hræra deigið saman í passlega blautan massa til að hnoða.
Hnoðið deigið eins lítið og mögulegt er.
Fletjið út og setjið á ofnplötu.
Þessi uppskrift gefur 1 stóran botn.