Hráefni:
- kjúklingabringur
- 4-6 msk Taco-sósa
- 1-2 bollar muldar flögur (hvaða teg finnst þér best?)
- salt/pipar
- 75 gr smjör.
Kjúklingur léttkryddaður með salt og pipar. Velt upp úr Taco-sósu og þrýst niður í muldar flögurnar.
Bringunum raðað í eldfast mót. Afgangi af flögum dreift yfir. Smjörklípur settar yfir á nokkrum stöðum.
Hitað í ofni ca.45 mín á 180°c.
uppruni: uppskriftaskipti via e-mail