Marengsinn
- 200 gr sykur
- 4 eggjahvítur
- 2 bollar rice crispies
- 1 tsk lyftiduft
Sykur og eggjahvítum þeytt saman (LENGI) hinu blandað varlega saman við með sleikju, setja bökunarpappír í 2 botna baka 150 °C í 45 mín
Á milli:
Þeyttur rjómi eftir smekk.
hægt er að setja ýmislegt saman við rjómann eins og t.d. Rommý, Pipp, súkkulaðirúsínur, ávexti eða bara hvað sem manni dettur í hug.
Krem:
- 100 gr súkkulaði
- 30-50 gr smjörlíki
- 60 gr flórsykur
- 4 eggjarauður
- ½ pela rjóma
Krem: Súkkulaði og smjör brætt í vatnsbaði, flórsykur og eggjarauðum þeytt saman og blandað við súkkulaðibráðina. Þessu er blandað saman við þeyttum rjóma.