- 3 egg
- ½ bolli sykur
- 6 bollar hveiti
- 5 tsk lyftiduft
- 1 l mjólk
- 3 msk matarolía
- 1 tsk salt
Egg og sykur þeytt saman, blandið hveiti, lyftidufti, salti, og mjólk saman við, hrærið þangað til allt er vel hrært saman þá er matarolíunni bætt saman við. Skonsurnar eru bakaðar við meðal hita á pönnu, snúið við þegar þær eru að verða þurrar.
ATH. Skonsubakstur er þolinmæðisverk.