- 1kg kartöflur
- 1msk smjör eða olía
- pipar
- salt
- oregano
- 2 egg
- 200 g hreint skyr
- 100 ml mjólk
- 10 cm bútur af blaðlauk smátt saxaður
- 2 msk nýrifinn parmesanostur (má sleppa)
Ofninn hitaður í 180°c
Kartöflurnar skornar í þunnar sneiðar, fljótlegast að nota matvinnsluvél til verksins. Meðalstórt eldfastmót smurt með smjörinu/olíunni, kartöflusneiðunum raðað á borninn og þær látnar skarast.
Dálitlu af pipar, salti og oregano stráð á milli laga.
Skyr, egg, mjólk og saxaður laukur sett í skál og hrært saman, kryddað með pipar og salti og hellt yfir kartöflurnar.
Bakað í 30mín, ostinum stráð yfir og bakað í 15-30 mín til viðbótar allt eftir því hvað fatið er stórt.
Gott er að stinga prjóni í miðjuna til að finna hvort þetta er tilbúið.