(lítil uppskrift)
Uppfærð, nú með myndum – áður birt í desember 2010
Bragðgóðar smákökur fyrir jólin 😉
- 1 egg
- 80 gr sykur
- 80-100 gr kókosmjöl
Sykur og egg sett í skál og þeytt mjög vel. Kókosmjölinu er bætt út í varlega og ekki verra að blanda því saman við sykureggjablönduna með sleikju.
Sett á plötu með teskeið. Bakað við vægan hita þar til þær hafa náð ljósbrúnum lit.
Hugmynd: einnig má dýfa helming hverrar köku í bráðið súkkulaði – kemur vel út