- Olía
- 2-3tsk Karrí
- Kjúklingabringur
- 1 krukka af Mango Chutney sweet
- Kókos mjólk light eða matreiðslurjómi (magn fer eftir hversu mikla sósu maður vill hafa með réttinum, kannski 1dl?)
- kókosflögur
Olía hituð á pönnu. Karríið sett út í og hitað í olíunni.
Kjúklingabringur skornar langsum í tvennt (ég kýs að skera bringurnar í minni bita) og brúnaðar í karríolíunni og svo færðar í eldfast mót.
Á pönnuna er sett ca 1/2 -2/3 krukka af MangoChutney sweet, Cokos mjólk eða matreiðslurjómi og látið malla aðeins.
Sósunni hellt yfir bringurnar í fatinu, kókosflögum stráð yfir. Setja álpappír yfir mestan hluta eldunar. Elda ca 40 mín.
Nammi með hrísgrjónum, nanbrauði, gúrkusalati og hafa restina af Mango Chutney on the side.