- 300 gr fínt borðsalt
- 6 dl sjóðandi vatn
- 1 msk. matarolía
- 300 gr hveiti
Gott er að vera í gúmmihönskum.
Setjið borðsaltið í skál og hellið vatninu yfir ásamt matarolíu (einnig matarlit ef vilji er fyrir).
Hrærið hveitinu smátt og smátt saman við þar til að leirkúla hefur myndast. Hnoðið degið í höndunum þar til að það er orðið mjúkt og tegjanlegt. Bætið við hveiti eftir þörfum.
Bökunartími fer eftir þykkt þess sem þið mótið úr deginu.
Þunnar fígúrur
Bakist í ofni við 175°C í 1,5 klst
þykkari hlutir sbr aðventukrans
Bakist í ofni við 175°C í 2 klst til 3 klst