kalóríubomba
2 pakkar af kókosbollum (4stk í pakka)
slatti af ferskum ávöxtum (má vera hvað sem er, jarðaber, bláber, hindber, bananar, kíví eða what ever) eða niðursoðnir ávextir
súkkulaðispænir.
Ávextirnir skornir í bita og sett í botninn á eldföstu fati, kókosbollurnar kramdar yfir.
Súkkulaðispænir settar yfir allt saman.
Ofninn hitaður í 200°c, fatinu skellt inn og beðið þar til sykurgumsið er orðið svona brúngyllt.
Borið fram með ís eða þeyttum rjóma.
[rating:4,5]