500 g hakk
150 – 200 g spaghetti
1 rauð paprika
4-5 stórir sveppir
3-4 hvítlauksgeirar
1krukka Salsasósa
Mariachi flögur með ostabragði eða því sem þér finnst best. Magnið fer eftir þínum smekk.
Svartur pipar
Karrí
Ólífuolía
*Sjóðið spaghetti samkv. leiðbeinginum á umbúðum.
*Skerið hvítlauk, papriku og sveppi í litla bita. Steikið í ólífuolíu. Kryddið með karrí og svörtum pipar. Takið af pönnunni. Setjið hakkið á pönnuna, steikið og kryddið eins og ykkur finnst best. Bætið salsasósu út í.
*Blandið spaghetti, grænmeti og hakki saman í skál. Myljið flögurnar út í.
Það er líka hægt að breyta réttinum t.d. með því að hafa annað grænmeti, meira spaghetti eða eitthvað.