- 200gr smjörlíki
- 2dl kaffi
- 3 egg
- 350gr hveiti
- 300gr sykur
- 3 tsk lyftiduft
- 1 1/2 tsk kanill
- 2 tsk negull
- 1 1/2 tsk engifer
Kaffið og smjörlíkið hitað saman. Egg og sykur er þeytt vel. kaffið og smjörl. látið saman við það og þeytt rétt aðeins. Þá er þurrefnunum blandað vel saman við með sleif, einnig má sleppa kryddtegundunum og setja þess í stað 2 msk af kakó. Deigið er síðan látið í smurða ofnskúffu.
Bakast í ca 15 mín við 200°c hita.
Þessi er úr safninu hennar mömmu.