Á föstudaginn ákváðum ég, Leifur, Ása og Sirrý að hittast og rifja upp minningarnar frá því á páskunum í fyrra þegar þær skvísur komu og heimsóttu okkur til Holte 🙂 Brilliant kvöldstund þar sem ýmsir punktar síðustu páska voru rifjaðir upp, m.a. Tópasinn! ég held að við 4 höfum verið annsi vel rauðvíns/súkkulaði legin eftir þessa…
Tag: daglegt röfl
Gleðilega Páska
hlaut að koma að því…
… flaug á hausinn í morgun eða nei ég datt á hnéið í hálkunni í morgun, sit núna hérna upp í vinnu og læt dekra aðeins við mig – með fótinn vafinn í klaka og fyrirmæli um að fara inn á skiptistofu áður en ég fer heim og ná mér í teygjusokk! bara svona forvarnarstarf…
bara skrítin tilfinning
það er ekkert smá skrítin tilfinning að labba út af vinnustaðnum á miðjum vinnudegi og vera búin í vinnunni!! ég er sumsé komin í skert starfshlutfall 😀
fæðingarorlofssjóður + vinnan
Ég var búin að vera að lesa svo miklar grýlusögur af þessum blessaða sjóði að mig kveið bara fyrir því að senda inn umsóknina og ef það væri eitthvað sem ég væri í vafa um í sambandi við útfyllinguna á pappírum og svona að það tæki mann víst marga daga að ná sambandi við þennan…
ái
þetta er nú meiri bröltormurinn *úff*
Þið segjið það
… ég hef frekar lítið að segja og er þar af leiðandi voðalega lítið að tjá mig hérna inni (svona miðað við oft áður 😉 ) – nenni ekki að vera að skrifa endalausar óléttupælingar fyrir umheiminn – hef þær frekar fyrir mig 😉 svona eitthvað sem ég get lesið næst 😉 Annars þá ……
mér leiðast…
… símtöl frá fólki sem er greinilega á prósentum fyrir hvern og einn einstakling sem það nær að skrá fyrir það fyrirtæki sem það vinnur hjá í úthringingarþjónustunni *piff* Ég fékk eitt svona símtal áðan, kerling sem ætlaði sér sko að ná að skrá á mig eitt stk e-kort, ég hef ekkert við nýtt kreditkort að gera. Mér er alveg sama þó það sé veltukort þannig að það þurfi ekki að borga allan reikninginn ef þannig stendur á hjá manni – það eru bara rúmlega 20% vextir…