ég er að fara í klippingu á morgun… liggaliggalái… þá hættir fólk reyndar að spyrja mig *ne, varstu að koma úr klippingu, gasalega er fínt á þér hárið…* merkilegt hvað fólk er gjarnt á að segja þetta alveg sama dag og ég er að eypa á hárinu á mér og þrái að komast í klippingu!!!
*pirr*
dísús… tilhvers er fólk með GSM síma ( en ekki heimasíma ) og er aldrei með hann á sér ??? hvernig á mar að ná í þetta lið????
matur *slef*
mig langar svo í eitthvað svakalega djúsí og gott að borða… kjúkklingabringur ala Vikan eða einhverja góða steik eða mikið pasta… eða bara eitthvað sem er rosalega gott… gæti svosem alveg sætt mig við brocoolisúpuna á Fridays 🙂
úúú
úúú ég fræg!!! eða næstum því… eða bara alls ekki neitt… en ég sat við hliðiná bloggidolinuogdrottningunni (að mati fólksins) og hennar krúi áðan hahahah how wírd is that… hahahah
er ég skrítin????
Einn sjúkraþjálfarinn segjir að ég sé ógeðsleg og stórskrítin… eða hún sagði það núna fyrir 5 mín síðan… Málið er að ég er að sjúga teskeið.. og hún var að spyrja hvað eg væri eiginlega að gera… ég hafði sett mysing í skeiðina og var að sjúga hann svo 🙂 ég hef gert þetta síðan…
Séð & Heyrt og Fréttablaðið
merkilegt hvað fréttablaðið og séð&heyrt eru farin að styðjast við heimildir úr bloggheimum… Séð & Heyrt kom með þarna Cloe og kærastans mál úr blogginu frá Betu og svo er verið að vitna í bloggið hennar Æsu í dag í fréttablaðinu… hafa þeir virkilega enga getu til að skrifa sínar fréttir sjálfir heldur þurfa að…
óskar + blogg
hversvegna í ósköpunum er Óskarinn alltaf á sunnudögum?!?! mig langar að sjá sjóið án þess að vita úrslitin 🙁 þetta er bara leiðinlegt… en mar fær víst ekki að velja allt saman… Annars þá er ekkert í fréttum… eða jú Axel hefur tekið upp á því að nota bloggið sitt… undur og stórmerki gerast enn…
væl
ég var víst búin að lofa sjálfri mér þegar ég gerði þetta blogg að væla ekki svona þannig að ég tók það sem ég skrifaði fyrr í dag ÚT