það er alltaf svo gaman í vinnunni þegar það er nóg að gera… sérstaklega þegar fólk er ekki að blaðra endalaust og í raun að tefja mann við það sem mar vill klára… eins og t.d. frágangur reikninga… vil klára það sem fyrst 😛 sérstaklega þá reikninga sem eiga að fara til TR.. sumt fólk…
Tag: daglegt röfl
hheheh, sætt…
það er kveikt á RÚV hérna í næsta herbergi, og jay Stundin Okkar… aníhow.. það er hópur af litlu krökkum að syngja.. lag með ÍRAFÁR!! hehe þetta eru svona 7-8 ára gamlir krakkar að syngja … “… ég vil bara vera ég sjálf…” krúttaralegt!!!
trallallalalaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaa….
djöfulli finnst mér það asnalegt að ég geti ekki keypt afturrúðuþurrku á litla græn á næstu bensínstöð… meina HALLÓ Polo er bara ótrúlega algeng bíltegund og það er EKKI hægt að fá afturrúðuþurrku neinstaðar nema í Bílanaust & í umboðinu… frekar fúll!!
jæja,
núna þykist Dagný ætla að hætta að drekka kóladrykki og aðra svona sykurdrykki… 🙂 allir segja Dagný gangi þér vel… ætla að fara eftir ráði sem ég sá í einhverju tímariti um daginn… hafa alltaf vatnsflösku við hendina og ef löngunin í gos er að þá endilega að velja frekar freska eða einhverja af öllum…
jibbý!!!
alveg síðan ég kláraði að skúra fyrr í kvöld þá hefur mig langað að fara í svona ísbíltúr eða bara rúnt með myndavél.. og jösssssss ég náði að plata Lilju í ís!!! reyndar held ég að það sé alltaf hægt á báðavegu… Við fórum að spjalla um þessar nafnalyklakippur og well okkur finnst það alveg…
Skúri skúri skúri…
jamm ég er að taka ræstinguna fyrir ræstinga fólkið í dag… ákvað að klára það bara STRAX eftir vinnu fyrst að það er möguleiki, annars… ég þekki sjálfa mig og eg myndi seint nenna að fara hingað aftur í kvöld til að SKÚRA! bjakketíbjakk!!! leiterz
ofboslega er mállingarlykt góð
úff ég er búin að fá þennann bévítans sundssmokka brandara frá svona 10 einstaklingum… HALLÓ ÉR BÚIN AÐ LESA HANN EKKI SENDA MÉR AFTUR TAKK!!!