ný rútína hjá manni *heh* Litli kúturinn varð 2 vikna í gær samt erum við bæði að tala um það að það sé eins og hann hafi alltaf verið hérna 🙂 fullkomin lítil persóna sem er kominn inn í líf okkar. Leifur heyrði alveg brilliant setningu einhverstaðar um daginn… jú þau fæðast með fullmótaðan persónuleika,…
ein af sætasta ;)
puttarnir eru greinilega alveg ofsalega góðir á bragðið 😉
skrítið
mér líður eins og ég sé orðin 18 aftur eða eitthvað álíka – amk komin í prófatíð í menntó! það er maí, úti er sól, yndislegt veður og búið að vera svona í nokkra daga en hvar er ég? jú ég er innandyra og “kemst” ekki út. hefði lítið á móti því að litli kútur…
hmmm
Eitthvað fer nú lítið fyrir uppfærslum hérna svona í og með vegna þess að mest allur minn tími fer auðvitað í það að kynnast og dást að drengnum mínum. Hann er búinn að vera alger engill þessa tæpu viku sem hann hefur verið utan bumbunnar, er alger svefngúrka og við höfum fengið að sofa á…
Lítill sætur strákalingur
Takk fyrir allar kveðjurnar elsku vinir og ættingjar 🙂 litli strákurinn okkar leit dagsins ljós kl 17:23 í gær (2.maí) hann var 3535gr (14 merkur) og 51 cm. okkur líður öllum rosalega vel og erum við foreldrarnir varla farin að snerta jörðina 🙂 frekar en ömmurnar, afarnir og frændsystkinin 🙂 Ég set inn frekari fréttir fljótlega, og eflaust ýtarlegri inn á síðuna hans á næstu dögum 🙂
er ekkert að gerast?
Hmm þið eruð fyndin 😉 Nei það er allt með kyrrum kjörum hérna – það hefur samt rétt rúmar 10 klst til að ná að verða verkalýðsdagsbarn 🙂 þó ég sé samt ekki alveg sammála honum Didda frænda, ef hans ágiskanir eru réttar þá myndi barnið “verða” að heita Guðmundur Jaki 🙂 Það væri nú…
það er..
Ekkert að gerast.. tók mér samt góðan tíma í dag að rölta um Smáralindina með Sirrý og Dagnýju (og smá með Lilju), spurning hvort það breyti einhverju þegar líður á kvöldið 😉 Annars fannst mér mest fyndið að heyra hana nöfnu mína vera að tala um hvað henni fyndist ég of róleg! Komin heila 4…
Tíminn líður…
… og ég er enn margföld! That is for sure.. annars er allt gott að frétta héðan, eyddi reyndar dágóðum tíma niðrá landsa í gær í mónitor, svaka gaman mikið fjör – ehe eða þannig 😉 ekkert að ekkert að gerast eða neitt þannig bara smá tékk á vegum Ásu ljósu 😀 Fannar frændi & Rán kíktu…