uppáhaldstímaritið mitt sem kemur bara út 1x á ári er komið í hús 🙂 það sem er líka xtra skemmtilegt í ár er að ég get framkvæmt sumt en ekki bara látið mig dreyma 😉 IKEA bæklingurinn er skemmtilegur 😀
úff
ok ég dáist að stelpunum sem eru með mér í netsaumaklúbbnum og eru að sauma stykki sem heitir Nature’s Home, það er HUGE en rosalega fallegt. Linda, klúbbmamman, sendi póst áðan þar sem hún sýnir okkur mynd sem einhver úti í hinum stóra heimi er gjörsamnlega gengin af göflunum!!!! án gríns!!! Hér má sjá sýnishorn af því hvernig Erlu Björk úr klúbbnum gengur með Nature’s Home og hérna er linkurinn sem…
furðuleg framkoma
ég dró mömmu í ísskápaleiðangur áðan… sem er í sjálfusér aukaatriði 😉 nema að við fórum og kíktum inn í Smith & Norland og rétt áður en við þrjú stígum út úr bílnum þá rennur bíll í stæðið sem var við hliðin á okkur, ok ekkert mál nema að þegar gellan sem er á bílnum er að taka krakkann sinn út úr bílnum þá skellist bílhurðin frekar harkalega…
með hvítar frekknur
framkvæmdirnar í Hvassaleitinu ganga hægt þessa dagana, aðalega vegna þess að Leifur er farinn á fjöll og ég með samviskubit yfir því hversu mikið ég var frá syninum í síðustu viku. Það þýðir samt ekki að framkvæmdirnar séu í algerum dvala 😉 meira svona hægvirkari en í síðustu viku. Ég fór t.d. í dag og…
nóg að gera
úff, við skötuhjúin erum búin að vera að vinna í íbúðinni alla vikuna og það er varla hægt að segja að þetta vaktarfrí Leifs hafi verið frí 😉 Það er heilmikið búið en jafnframt heilmikið eftir… erum samt búin að fá góða hjálp frá pabba, tengdó og Gunnari bróður Leifs (aka loftamálarameistarinn) tala nú ekki…
Nú verða sagðar fréttir
Þann 27. júlí 2007 gerðum við skötuhjúin tilboð í íbúð… fengum gagntilboð frá eigendunum sem við samþykktum 😉 Í dag 13. ágúst skifuðum við undir kaupsamning og fengum lyklana að nýja heimilinu okkar 🙂
takk :)
takk fyrir öll kommentin, msn-skilaboðin, e-mailin, sms-in og símtölin í gær 😀 átti nú ekki alveg von á að svona margir myndu eftir mér, þið eruð yndi! Lilja & Sóley Svana voru mættar hérna rétt fyrir kl 10 í gærmorgun með köku 😉 ferlega sætar mæðgurnar!! Skellti mér svo með Sirrý & Oliver í Smáralindina og í IKEA, þar sem við báðar létum okkur dreyma annsi vel 😉 verst að hafa ekki skúffur/skápa til þess að geyma alla þessa litlu “bráðnauðsynlegu” hluti 😉 ok og…
helgin
jæja þá erum við mæðginin komin heim… keyrðum alla leið í gær og vorum komin inn um dyrnar á Framnesveginum rétt fyrir kl 1 sem þýðir 12 klst ferðalag *óboj* reyndar alveg klukkutíma stopp á Akureyri hjá elsta Oliver fjölskyldunnar og hans familíu 🙂 verst að ég gleymdi að taka myndavélina með inn… það hefði…