ég er nú ekki svo galin eftir allt saman :o) mér tókst bara að skrifa nokkrar skipanir vitlaust í .config skrá sem opnar forritið *hahaha* og dúddinn var nú ekkert svo stutt hérna hjá okkur að redda málunum… tók hann alveg klst að redda þessu *heheh* en plúsinn var sá að ég fékk smá viðurkenningu…
Tag: daglegt röfl
morgunhress með meiru
eða hvað ? Ég dreif mig á lappir 6:30 til þess að vera mætt niðrí Baðhús í Body Combat tíma kl 6:45 ég verð nú að viðurkenna það að mér þykir ekki mikið koma til þessa tíma… það er einhvernveginn meira átak í síðdegis tímunum.. hmm kannski spurning um að prófa aftur í næstu viku…
nýr strumpur!
ég fékk að vita smá leyndó núna rétt áðan… mér er búið að takast að smita nokkra einstaklinga af þessari bloggfíkn sem herjar landann með “gamlagóða” blogginu :o) já það eru nefnilega fleiri en bara hún Ása litla sem smituðust… hinn aðilinn mun vera engin önnur en hún Strumpa! Velkomin í bloggheima gella!!!
Frá VR
Kæri félagsmaður Í dag 5. maí var orlofshúsum og tjaldvögnum VR úthlutað fyrir sumarið 2004. Því miður verðum við að tilkynna að þér var ekki úthlutað orlofshúsi eða tjaldvagni í sumar. Flestir sóttu um sumarbústað í júlí og ágúst og því miður er ekki hægt að verða við öllum þeim óskum. Alls voru 1973 umsóknir…
er sumarið komið ?
það er allavegana farið að sjást til sólar… hún gæjist á okkur í gegnum skýin svona öðruhverju svo að við sem erum föst inni allan daginn dauðöfunum þá sem eru ekki að vinna eða á annan hátt lokaðir inni allan daginn… nema hvað þegar maður svo loksins sleppur út þá er bara skítakuldi og vesen……
SNILLD!!!
letipetiseti
endalaus leti hjá mér þessa dagana… nenni ekki að blogga… ligg upp í bæli/sófa og glápi á video held ég sé að taka út dugnaðinn í fyrripart síðustu viku… ég efa það sko ekki!!!
afmæli !!
Ég má auðvitað ekki gleyma því að óska fólkinu til hamingju með daginn… og hef einmitt til þess akkúrat 14 mín samkvæmt klukkunni í tölvunni :o) Davíð höztler til hamingju með að vera búinn að ná 30 árum :o) & Þorbjörg til hamingju með árin 25 :o)