Eftir átveislu gærkvöldsins ákváðum ég og krakkarnir að skella okkur í göngutúr og nýta þessa nýfundnu orku 😉 eða bara sykurorkuna.
Við héldum afstað yfir í Garðabæ þar sem við lögðum á bílastæðinu við Vífilstaðavatn og gengum í hringinn þar eða Sigurborg Ásta fékk að vera í burðarpokanum og ákvað svo að dotta aðeins á bakinu á mér 😉
Oliver er alveg eins og pabbi sinn og hefur tamið sér gönguhraða hans. Við mæðgur vorum því alltaf nokkrum metrum á eftir honum á milli þess sem hann stoppaði til að kasta steinum út í vatnið veiðimönnunum til mikils ama.