Vífill frændi og Jónina hans eiga fullt af hrósum skilið fyrir að hóa í stórfjölskylduna á hverju ári til þess að snæða saman (komi þeir sem vilja ;-)) já ok, það er misjafnt hversu girnilegt fólki þykir það sem boðið uppá 😉 Sviðalappir, svið, hangikjöt og allt hið klassíska meðlæti 🙂
Ok ég viðurkenni það alveg að svið og sviðalappir eru ekki alveg mér að skapi, hangikjöt þykir mér fínt og meðlætið EN Félagsskapurinn finnst mér alveg frábær í alla staði 😀
Sigurborg Ásta var í fyrsta sinn til í að smakka og fékk löpp hjá ömmu sinni .. boðið er upp á þær bæði heitar og kaldar og var hún hrifnari af þeim heitum 🙂 Ása & Oliver smökkuðu bæði aftur og enn sama sagan bleh ekkert sem þeim langar í 😉 héldu sig bara við hangikjötið.