á sæti strákurinn sem ég hef þau forréttindi að kalla minn afmæli.
síðar í dag verða komin heil 25 ár síðan hann kom í þennan heim :o)
gaman að geta verið hjá þér þegar dagurinn gekk í garð
og getað gefið þér það sem verður bara á milli okkar ;o)
hlakka til að fá að eyða öllum deginum með þér :o)
njóttu dagsins til hins ýtrasta.
þín Dagný Ásta
p.s.
þið sem voruð að pæla í prakkarastrikinu þá tengdist það auðvitað deginum í dag… og honum Leifi mínum ;o) Ég ætlaði að vera svo “góð” að gefa honum heimatilbúið dvd hulstur sem átti að afhendast í fjölskylduveislunni í kvöld og heimatilbúniparturinn var auðvitað þannig að halda átti að þetta væri einhver hörku mynd sem keypt hefði verið annaðhvort hér eða hér nú eða hér og svo frv…