Það er svo margt sem mig langar að tala um akkúrat í augnablikinu, efniviður í nokkur blogg… ekkert tengt en samt tengt saman af yours truly.
Best samt að taka eitt fyrir í einu.
Í gær var haldin svakaleg veisla í tilefni af 25 ára afmæli karlsins :o)
Þetta var bara nánasta familían hans og var alveg hreint stórskemmtileg, tengdó voru svakalega myndarleg og snöruðu fram þessari risa Mexíko veislu með öllu tilheyrandi :o) eða hérum bil… vantaði þessa þarna Mariachi söngvara, efast samt um að það hefði verið pláss fyrir þá *haha*
Kvöldið var mjög vel heppnað og endalaus gleði við völd.
Takk fyrir mig :o)