litla frænka mín var að sækja um í Verzló.. hún er svo róleg yfir þessu öllu saman, tekur alveg inn í myndina þann möguleika að hún komist ekki inn í Verzló… sem er bara frábær hugsunarháttur hjá henni, tekur þessu enganvegin sem sjálfsögðum hlut.
Ég hef hinsvegar fulla trú á litlu frænku, ef Þorvarður og co þykjast ætla að synja henni um inngöngu eða setja hana á biðlista þá eru þeir bara e-ð klikk!!! að setja nemanda sem er með 9.45 í meðaleinkun upp úr grunnskóla á bið er bara bull og ég neita að trúa því að þeir séu það miklir bullukollar :o)