skellti mér á tónleika í fyrrakvöld :o)
Ekki amalegt að vera í VIP hópi sem fær sérboð á tónleika. Hangikjötið hélt sína aðra tónleika og var eins og áður rosalega vel mætt.
Hangikjötið er hópur af góðum félögum sem spila á gítara og syngja hressilega :o) Þar af eru 2 samstarfsfélagar mínir. Þorgeir fór á kostum með greiðuspili :o)
Takk fyrir fína tónleika og takk fyrir mig!