Pabbi slær ekki slöku við og er endalaust að framleiða nýjar týpur af sveinum já og öðrum köllum 🙂 Mér skilst að hann sé búinn að tálga og gefa yfir 2000stk í ár og þar af eru flestir ómálaðir og gefnir til m.a. MS setursins þar sem þeir eru málaðir og svo seldir á jólabasar MS félagsins í byrjun aðventunnar.