eða svona plönin fyrir sumarfríið byrja vel
*haha*
Ég og Iðunn kláruðum semsagt að borga ferðina okkar núna síðasta föstudag og var mér sagt að ég ætti að fá miðana og kvittanir í pósti í byrjun þessarar viku. jújú kvittanirnar og flugfarseðlarnir komu í pósti í gær…
Þegar ég fór að skoða farseðilinn betur tók ég eftir því að þetta var bara farseðill fyrir 1 og það til BILLUND þann 7.júlí en ekki til Costa Del Sol þann 27.júlí… smá mistök!
þetta var bara fyndið og stelpu greyjið á Plúsferðum var alveg eins og kúkur í símanum þegar ég hringdi í hana til að spyrjast fyrir um þetta. Aníhú ég heiti ekki Kristín og ég er ekki að fara til Billund í rúman mánuð.