Hafrún frænka gekk að eiga Óskar sinn í dag í yndislegu brúðkaupi þar sem Sibba litla systir hennar kom öllum á óvart með því að gefa hjónakornunum söng í brúðkaupsgjöf. Alveg yndisleg litla skottan sem er bara 6 ára.
Athöfnin fór fram í Garðakirkju á Álftanesi og veislan í Garðaholti sem er þar hjá. Virkilega falleg athöfn og dásamlega skemmtileg veisla enda snillingar við völdin sem veislustjórar.
Til hamingju elsku frænka & Óskar <3