já ég er eiginlega bara alveg kolfallin!
það kom í heimsókn hingað til mín í vinnuna lítil fegurðardís, reyndar var mamma hennar að fara í sjúkraþjálfun og litla dísin var að lúlla hérna frammi hjá mér…
allar bjöllur fóru á fullt og það verða allar varúðaráðstafanir teknar næstu daga/vikur teknar til þess að ég endi ekki með eitt stk svona dís tja eða herra eftir tæpt ár
það heyrðist varla í dömunni, en samt var hún ekki sofandi allan tíman heldur bara að skoða þessi skrítnu andlit sem voru alltaf að kíkja ofan í vagninn (jájá ég var örugglega 70% af skiptanna þetta skrítna andlit but só what).
Hún er svo pínupínuponsulítil og alger engill, verð að fara að drífa mig í heimsókn fá að máta