sumt fólk getur gert mig alveg hoppandiurrandiilla!
með frekju og tilætlunarsemi sem er alveg sko WAY out of line.
lenti í svona símtali áðan með konu sem er að biðja um að fá gögnin sem læknirinn lét hana fá… e-ð í sambandi við skýrslugerð lögfræðinga, ekkert mál ég tek ljósrit af beiðninni, af bréfinu sem kom frá TR um fjölda tíma sem henni voru úthlutaðir og prenta út upplýsingar um fjölda tíma sem hún hefur komið hingað til okkar. Þetta er svona standard pappírsflóð sem ég læt frá mér í svona tilfellum, ef Lögfræðingarnir vilja fá meira þá verða þeir að senda viðkomandi sjúkraþjálfara skriflega beiðni og með vottuðu umboði frá þeim sem á að skrifa skýrsluna um.
Nei þetta var víst ekki nóg… hún ætlaðist til þess að fá líka dagnótur þjálfarans sem er í raun ólæsilegt oftar en ekki og akkúrat í þessutilfelli á dönsku!
Þjálfararnir skrifa þessar dagnótur eingöngu fyrir sig í rauninni til þess að sjá hvað þeir voru að gera með viðkomandi einstaklingi síðast og svo hvort það hafi haft áhrif eða ekki og hvernig viðkomandi bregst við meðferð. Þeir skrifa þetta í svona stikkorðum sem öhh þeir sjálfir hafa jafnvel búið til þannig að þetta er í raun ekki læsilegt fyrir hvern sem er…
æji blöh… ég sagði allavegana við kellu að ég hefði ekki leyfi til þess að láta hana hafa dagnóturnar nema að þjálfarinn gæfi mér heimild til þess… enda er það engin lygi.
þvílíki dónaskapurinn sem þessi kella veitti í minn garð… ég sem betur fer náði að halda mig á mottunni og beit annsi fast í tunguna og kinnina.. er enn aum í kinninni *heh* þannig að ég er alltaf sama góða stelpan *hóstyeahsureIamhóst*
Reyndar er hennar frekjusaga mun mun lengri og spannar yfir nokkra mánuði þannig að ég er ekki alveg hlutlaus í að segja frá þar sem hún virðist leika sér að því að vera pein!
mér bara blöskraði svo hrottalega núna að ég varð að tjá mig.