Við kíktum í berjamó í dag… Við fengum Hrafn Inga lánaðan og fórum á staðinn okkar 😉
Fundum alveg FULLT af berjum en hinsvegar var svo svakalega hvasst og kalt að við entumst ekki lengi …Þrátt fyrir þennan kulda þá náðu Oliver og Hrafn Ingi að fylla 1L ísbox á met hraða 🙂
Sigurborg greyjið var alveg stjörf, henni var svo kalt og hún svo óörugg að við mægður, þrátt fyrir góðan vilja, stungum fljótt af af inn í bíl… hin 4 fylgdu ekki svo löngu á eftir.
Við stoppuðum svo á leiðinni til baka í picknick þegar við fundum skjól þar sem það var hreinlega ALLTOF hvasst þarna til þess að næra sig 😉