jæja ég er búin að klára að setja hingað inn hellings helling af gömlum færslum *stolt* ekkert smá gaman að lesa þetta yfir og sjá hvað var að fara í gengum kollinn fyrir ca ári síðan :o)
annars þá er búið að vera alveg óhemju rólegt í vinnunni bæði í dag og í gær…
það er búið að falla þannig að þjálfarar eru að vinna part úr degi eða í fríi og hittist þannig á að það hafa bara verið 2 að vinna í einu *ljúft* eða í 1-2 tíma þá eru fleiri… bara notalegt :o)
í kvöld er það svo kveðjuhóf Rebekkunnar… æj hvað það verður nú skrítið að hafa hana, drifboltann, úti í London í sumar… Ég og Iðunn erum einmitt búnar að vera að telja hana á að finna sér ódýrt far til Spánar um Verslunarmannahelgina og koma að hitta okkur á Costa Del Sol :o)
en fyrst HEIM!