það er að koma nýtt hús í næstu götu,
nei það er ekki verið að byggja nýtt hús heldur er verið að fara að flytja einhvern risastóran hundakofa af Laugarveginum hingað vestur í bæ… nánar til tekið á Álagrandann..
Ég man þegar hin 2 húsin voru flutt á Álagrandann fyrir tja ca 20 árum síðan… við vorum vakin upp hérna um miðja nótt með hávaða vegna þessara risastóru trukka sem voru á leið upp Framnesveginn og svo allir bílarnir með ljósin blikkandi á trilljón, engin gat sofið í húsinu fyrr en bílarnir voru komnir á áfangastað það mikil voru lætin…
Ég er reyndar búin að ákveða það að ég verð ekki hér í kveld heldur hjá kjúklingnum mínum í Álfheimunum þannig að ég á von á því að geta sofið í nótt *jeij*
Þegar ég kom heim úr vinnunni voru kallar á “bæjarbíl” að vinna við það að klippa af ljósastaurunum svo að húsið komist nú örugglega upp götuna *kvíði* ég veit reyndar að húsið verður flutt í 2 pörtum en vá ég væri bara hrædd um litla græn og að það myndi e-ð fara utan í hann þar sem hann á sitt fasta stæði alveg við götuna en það er bara svona…
annars efa ég það ekkert að það væri lúmst gaman að vera heima þegar þetta gengur á.. læt pabba gamla bara um að taka myndir fyrir mig :o)
Húsið sem ég er að tala um er (eins og er) staðsett frekar ofarlega á Laugarveginum (þ.e. rúntlaugarveginum fyrir neðan Hlemm) við hliðiná þar sem áður var Stjörnubío og á móti versluninni 17.
Well ég er flúin!
[::Öppdeit::]
sko mig… ég er ekki eins græn og ég virðist vera… hér er frétt um þetta hús á mbl.is