enn á ný er ég að springa úr stolti yfir syninum 😉
í morgun þurftum við að fara með strumpinn í pústviðgerð og ákveðið var að taka hjólin með þangað og hjóla frá Dugguvogi og alla leið til mömmu og pabba í Vesturbænum og það gerði guttinn og gott betur! í raun hjóluðum við hringinn um Rvk að Elliðánum með góðri pásu hjá M&P og viðkomu úti á Gróttu!
Þetta var bara gaman þrátt fyrir slatta mótvind á bakaleiðinni og ótal stoppum til að ná andanum í Fossvoginum 😉
Tæplega 28km að baki hjá 8 ára gutta 🙂