jæja ég held ég sé búin að jafna mig…
þetta var Kvíði (sembeturferþvíaðégnenniekkiaðveraveik)
ógeðsgæjinn kom aftur í gær semsagt.. og yfirmaðurinn talaði við hann… Kauði kom svo og talaði við mig og baðst afsökunar á þessu og sagði að þetta hefði nú bara verið “í gríni”.
Mér er alveg sama hvort þetta hafi verið sagt í gríni eða ekki! Málið var að þetta er bara e-ð sem maður Á ekki að segja.
EN hann áttar sig ekki á því að það er ekki bara kjafturinn sem hann á að passa… nei kauði þurfti endilega að klappa á öxlina á mér allan tímann og halda hálfpartin utanum mig, ég var alveg frosin þarna bara stíf og þver!
vá hvað ég varð reið eftir þetta…