Suma einstaklinga er bara “stór hættulegt” að þekkja 😉
Stuttu eftir að síðasta leyniprjóni lauk var Linda búin að senda inn á netið slóð að nýju leyniprjóni sem var bara aðeins of heillandi… amk fyrir mig.
Ég var aðeins farin að spá í garnvali þegar ég datt inn í garndeildina í Hagkaup í gær og þar beið mín uppi í hillu þessi litasettering úr Alpakka Silk en uppskriftin kallar á að maður sé annað hvort með 1 eða 3 liti og ef 3 verða fyrir valinu mælti höfundurinn með því að velja annað hvort 3 MJÖG ólíka liti eða nokkra litatóna í sama lit.
Fyrsta vísbending kemur á mánudag og ég get varla beðið eftir að byrja 😉