oj hvað það er viðbjóðslegt að vakna uppfullur af hor, aum í hálsinum og höfuðið alveg rosalega þungt 🙁
En svona er þetta víst, staðan í dag er semsagt LASIN og lítið sem ég get gert við því *dæs* ég vona bara að ég fái ekki töfaldan skammt þar sem Iðunn & Leifur voru bæði lasin í síðustu viku en ekki ég… ætli mér sé kannski að hefnast fyrir það að vorkenna þeim ekki nóg… I sure do hope not!!!!
Ég var að prufa að senda e-mail áðan úr símanum… tókst svona glimrandi vel fyrir utan þessa LJÓTULJÓTU auglýsingu sem fylgdi með… máske maður komi til með að senda svona línur frá Spáni í sumar… óvitlaust 🙂
o jæja ég ætla að skríða aftur upp í rúm