Sko eins og ég hlakka til að sjá loka útkomuna á þessu sjali þá er ég alveg á báðum áttum, er þetta virkilega að verða búið? Þýðir það að ég sé að fara að leita uppi fleiri svona? eða bara taka þátt aftur að ári (skilst að þetta sé 4 árið sem þessi hönnuður er með svona leyniprjón).
Ég byrjaði á fjórðu vísbendingunni á föstudagskvöld (24.apr) og kláraði bara rétt í þessu. Núna er ég eingöngu að vinna með garn sem heitir Fjara og er þessi karryguli. liturinn er ekki eins dökkur og hann virkar á þessari mynd samt.
Ég er alltaf að verða sáttari og sáttari við sporið úr vísbendingu 3, sérstaklega núna þegar litur 2 er eingöngu.
Nú er allt of langt í næsta föstudag en það er samt kannski allt í lagi þar sem ég kemst ekkert í að vinna síðustu vísbendinguna fyrr en í fyrsta lagi á laugardagskvöld þar sem Olli minn á afmæli á laugardaginn og ætlar að keppa á stigamóti í sundinu á föstudaginn 😉 nóg að gera hjá fjölskyldunni.