Ása Júlía tók þátt í verkefni sem heitir “Ég fæddist í landi sem lifir” á Barnamenningarhátíð 2015 ásamt félögum sínum á leikskólanum í Hörpunni í dag. Þetta var svoooooooo flott hjá þessum elskum. Þau sungu eins og englar og þvílíkur kraftur í þeim þegar þau sungu erindið um Eldin í Þúsaldarljóðinu. Gæsahúð fyrir allan pakkann.
Það voru líka rosalega stoltir foreldrar sem biðu eftir krökkunum sínum eftir þessa sýningu, þvílíku hrósin sem þau fengu öll sömul.
Við tókum slatta af myndum þökk sé zoom linsunni okkar og einnig video sem munu etv rata inn á vefinn við tækifæri.