Hann gengur hægt og rólega jólatrésdúkurinn minn. Þetta er mynd 7 (eða dagur 7) en ég sleppti síðasta þriðjudegi v/ veikinda.
Ég er búin með sem svarar rúmlega 1 bls af 8. Það er reyndar mjög mismikið á þeim.
Nú er ég að myndast við að setja saman jólatré þarna vinstramegin á myndinni, það fáránlega er að það spannar 4 bls. eða réttara sagt þá er stæðsti hlutinn á 1 bls en toppurinn skiptist á 2 bls og ca 1/3 af neðrihlutanum á þá fjórðu.
Mér finnst virkilega gaman að sjá þetta svona í þrepum og er mjög ánægð með sjálfa mig að hafa tekið þá ákvörðun að taka mynd eftir hvern saumadag :-p