Suma daga hlakkar mann bara aðeins meira til en aðra til að borða kvöldmatinn… og ekki skemmdi fyrir að þessi réttur dugaði okkur í nokkrar máltíðir enda matarmikill og góður.
Þetta er ss Chili con Carne af síðunni Ljúfmeti. Ég reyndar notaði ekki alveg sömu baunablöndu og hún en það skiptir ekki máli 🙂
Oliver var alveg í skýjunum með þetta og borðaði vel af þessu… m.a. meira en ég og Leifur til samans.
Svo var ekki síðra að skella þessu í pítubrauð með smá salati, gúrku og papríku og þá er komið bragðgott nesti í vinnuna… eða það gerði ég amk.