Oliver, Ása Júlía og Sigurborg Ásta teiknuðu myndir til að setja með í kistuna til Sigurborgar Langömmu sem var kistulögð í dag.
Dásamlegar myndir sem fengu að fara í kistuna.
Oliver teiknaði eina stóra rós handa langömmu sinni og Ása Júlía teiknaði mynd af rós, sér á háhesti á Olla og svo langömmu í hjólastólnum… Sigurborg Ásta vildi auðvitað líka prufa og “teiknaði” svaka fínt listaverk á milli þess sem hún smakkaði á litunum 😉