allt búið að vera á haus… og þá meina ég ALLT!!
M & P eiga bókað far til köben á fimmtudaginn en það er spurning hvort þau fara… þannig er að elsti bróðir pabba dó sl. föstudag og það er allt búið að vera á haus. Systir hans pabba sem býr í USA ætlar að reyna að koma heim og hún gistir alltaf hérna þannig að það er bara búið að vera að vesenast í því hvenær hún kemur og hvenær jarðaförin verður… m & p ætluðu að vera í köben í tæpa viku… efast um að það gerist núna en pabbi þarf að mæta eitthvað í Svíþjóð um helgina.. þau ætluðu bara að vera góð við sig og eyða smá tíma saman í köben… ætli það gerist héðanaf þótt þau fari til köben og þaðan til sverge þá efast ég um að þau verði þessar aukanætur. það kemur í raun ekkert í ljós fyrr en börnin hans Halla hafa talað við prestinn og bókað kirkju.. þannig að það kemur ekkert í ljós fyrr en á morgun eða hinn… ekki beint neitt til að hlakka til. þetta er bara svona… lífið heldur víst áfram þótt svona nokkuð gerist… þetta eru bara döpur tímabil.