Ein úr nóvembermömmuhópnum mínum er búin að vera að dásama brennóhópinn sem hún er í en þarna eru hressar kellur á ýmsum aldri sem hittast í Kórnum og spila brennó 2x í viku. Ákvað að skella mér með henni í 1 tíma í september og þá varð ekki aftur snúið!
Þetta er lygilega mikið púl og ofsaleg gaman!
Ég er að vísu svo “heppin” að ég merst mjög auðveldlega og fæ því annsi litríkar minningar úr hverjum brennóhittingi! eins og sjá má á meðfylgjandi mynd 😉