Ég fékk tilkynningu í kringum mánaðarmótin júlí/ágúst frá Ásu Júlíu um að hún ætti sko engan RÖNDÓTTAN kjól… verður ekki að redda því?
Heppin ég að vera búin að sjá kjól á Ravelry sem heitir NOVA og vera búin að bræða það með mér að skella í einn slíkann á skottuna mína.
Við Ása röltum við í Nettó stuttu síðar og Ása valdi sér 2 liti í Mandarin petit garninu. Kom mér pínu á óvart að hún skyldi velja sér svartan með bleikum í stað þess að taka annan ljósari bleikan en hey það er bara fínt!
Ég á reyndar eftir að taka myndir af Ásu Júlíu í honum en henni tókst auðvitað að gera hann skítugan þegar hún fékk að máta hann og neitaði jafnframt að fara úr honum 😉