mér þykir pínu gaman að sjá hvað Sigurborg Ásta er ánægð með gíraffakrúttið sem ég heklaði handa henni í sumar/vor.
Þessar tvær myndir eru teknar með nokkurra vikna millibili og á báðum er greinilega gott að kúra með Gíraffakrúttið 🙂
Ég verð þó að viðurkenna að ég er hálf fegin því að hún hefur amk ekki enþá sýnt að hún sé háð því að hafa einhvern ákveðinn bangsa hjá sér, Gíraffakrúttið er greinilega bara svo passlegt í lítinn lófa.