Hrafn Ingi var hjá okkur um helgina. Þeir frændur skemmtu sér konunglega við hin ýmsu prakkarastrik eins og þetta… fundu sér trjágrein sem auðvelt var að grípa í frá bekknum á leikvellinum og sveifluðu sér í trjánum til skiptis.
Þeir skemmtu sér svo vel þarna að ég átti frekar erfitt með að stoppa þetta af… skárra að þeir væru að þessu heldur en að klifra upp í tréin eins og Oliver á til að gera þegar hann er að leika við Sölva vin sinn.