það er lúmskt gaman að hekla fígúrur. Ég hef núna gert nokkur dýr það sem af er þessu ári og segja má að það sé allt út af þessari áskorun sem ég tók þátt í hjá Woollen thoughts í janúar.
Hingað til hef ég semsagt gert þessa krúttlegu kanínu sem var í leyniheklinu, kisu, gíraffa, 2x kanínu [1] [2] og nú Frisssa frosk.
Ég er ekki alveg búin að gera upp við mig hvað verður um Frisssa en væri ekki hissa ef hann endaði í einhverjum pakka eða hreinlega í bangsaflóðinu sem deilir rúminu með Ásu Júlíu á hverri nóttu 😉