Við skelltum okkur í bíltúr á Þingvelli í dag… nutum þar veðurblíðunnar í picknick og frisbí!
vonandi fáum við fleiri svona daga í sumar, annað en síðasta sumar 🙂
Það er svo notalegt að kíkja svona út fyrir borgina og njóta sín aðeins í náttúrunni. Sigurborgu Ástu fannst þetta samt eiginlega bara skrítið og var eiginlega bara hissa á okkur að sitja í þessu græna sem kítlaði mann bara í iljarnar!