Mér datt í hug um daginn að hekla ferðafélaga fyrir ferðalög sumarsins… Vonandi eigum við eftir að ná takmarkinu að taka myndir af honum á sem flestum stöðum.
Fyrir valinu varð þessi ferlega krúttlega kanína sem ég fann á flakki mínu um Ravelry.
Ég keypti bómullargarn í Hagkaup sem heitir Flox og notaði 3mm nál. Einnig keypti ég svokölluð “öryggisaugu” í Föndru og nebba sem er með samskonar festingu og á víst ekki að vera hægt að naga af 😉 Eftir að hafa skoðað hvað aðrir sem hafa gert þessa kanínu ákvað ég að hekla ekki dindilinn á hana eins og uppskriftin segir til um heldur búa til lítinn sætan dúsk 😉