ég tók þátt í áskorun á netinu sem fólst í því að birta 1 mynd á dag í 100 daga. Lúmskt skemmtileg áskorun. Eitthvað af myndunum hefur þegar ratað hingað inn en allar eru þær á instagram reikninginum mínum.
Myndirnar þurftu auðvitað ekki að vera neitt sérstakar, bara hversdagslegar myndir af því sem gladdi mann þann daginn. Auðvitað eiga ungarnir mínir 3 stóran þátt í hversdagsgleðinni en stundum rataði góður matur, ný verkefni og svo frv þarna inn líka 🙂
Hér eru þær allar 😀